Á hnífsins egg
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2001 | 1.455 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2001 | 1.455 kr. |
Um bókina
Það voru mikil umbrot í þjóðlífinu á árunum fyrir og eftir 1970, mikil vakning ungs fólks, mótmæli gegn her í landi, gegn stríðinu í Víetnam, gegn einræði herforingjastjórnarinnar í Grikklandi og hvers kyns rangsleitni víða um lönd. Þar var Sigurður A. Magnússon framarlega í flokki, svo mjög að í margra augum varð hann á þessum árum að holdgervingi andófsaflanna í landinu. Hér segir frá mörgum frægum atburðum úr baráttusögunni: Þorláksmessuslagnum og aðdraganda hans, fjöldafundum og baráttunni gegn Varið land og atlögu þess félagsskapar að málfrelsi.
Í bókinni segir Sigurður af alkunnu hispursleysi sínu og fjöri frá ritstjóratíð sinni á Samvinnunni sem hann gerði að helsta umræðuvettvangi landsins á sínum tíma, húsbyggingu í Mosfellsbæ, ferðalögum hér heima og erlendis, skáldskap og fjölskyldulífi – og innri átökum.