800-fastan
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2020 | 280 | 3.890 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2020 | 280 | 3.890 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Um bókina
Bókin 800-fastan er byggð á nýjustu vísindarannsóknum um þyngdartap og lotubundnar föstur, blóðsykur og meltingu, sem sýna að gott er að setja markið við 800 hitaeiningar á dag – nógu lítið til að efnaskipti líkamans örvist og maður léttist hratt.
Einn af meginkostum þessa mataræðis er hversu sveigjanlegt það er – fólk setur sér sjálft markmið, vinnur að þeim á sínum hraða og nær þannig að léttast, draga úr hættu á sykursýki 2 og bæta líf og heilsu. Í bókinni er fjöldi girnilegra uppskrifta sem henta fyrir 800-föstuna og leiðbeiningar um hvernig má laga þær að eigin smekk og markmiðum, auk matseðla sem auðvelda fólki að skipuleggja mataræðið.
Breski læknirinn og þáttagerðarmaðurinn Michael Mosley hratt af stað heilsubyltingu þegar hann gaf út bókina 5:2-mataræðið og kynnti þar lotubundnar föstur. Bókin sló í gegn og hefur verið þýdd á 40 tungumál. Mosley hefur einnig sent frá sér vinsælar bækur um blóðsykur og meltingu.
Guðni Kolbeinsson þýddi.