Thor Vilhjálmsson

Thor Vilhjálmsson látinn

Thor Vilhjálmsson rithöfundur er látinn 85 ára að aldri.

Thor lauk stúdentsprófi frá MR 1944, stundaði nám við norrænudeild Háskóla Íslands á árunum 1944-46 og nam síðar við Háskólann í Notthingham  og Sorbonne-háskóla. Hann var formaður Rithöfundasambands Íslands 1959-60 og 1966-68 og  forseti Bandalags íslenskra listamanna 1975-1981. Hann sat í framkvæmdastjórn Listahátíðar og  í stjórn Alliance Franqaise um árabil. Thor var einn af stofnendum menningartímaritsins Birtings 1955 og sat í ritstjórn þess til 1968. Thor var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót af Háskóla Íslands á síðasta ári.

Fyrsta bók Thors, Maðurinn er alltaf einn, kom út árið 1950. Síðan skrifaði hann fjölda bóka, skáldsögur, ljóð, leikrit og greinasöfn. Auk þess hafa komið út eftir hann þýðingar úr ýmsum málum, m.a. frönsku, ensku, spænsku, portúgölsku og ítölsku. Hann hefur einnig fengist við myndlist, haldið málverkasýningar og skrifað um íslenska myndlistarmenn, þar á meðal bækur um Jóhannes Kjarval og Svavar Guðnason.

Árið 1992 sendi Thor frá sér fyrsta bindi endurminninga sinna, Raddir í garðinum og hélt áfram á sömu braut með bókinni Fley og fagrar árar, sem út kom 1996. Thor var þrisvar tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og hlaut verðlaunin árið 1987 fyrir skáldsöguna Grámosinn glóir. Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Morgunþula í stráum 1998. Hann hefur tvisvar hlotið bókmenntaverðlaun DV. Árið 1992 hlaut Thor bókmenntaverðlaun sænsku akademíunnar fyrir ritstörf. Hann hefur fengið fleiri erlendar viðurkenningar, m.a. er hann heiðursborgari í franska bænum Rocamadour, hefur hlotið frönsku orðuna Chévalier de l’art et des lettres og ítalska orðu, Cavaliere dell’Ordine dello Merito.


Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning