Lilja Sigurðardóttir hlýtur Blóðdropann 2018, hin íslensku glæpasagnaverðlaun, fyrir bók sína Búrið sem JPV/Forlagið gaf út á síðasta ári. Lilja er önnur konan sem fær verðlaunin frá því þau voru fyrst veitt árið 2007. Meðal verðlaunahafa fyrri ára eru Arnaldur Indriðason sem hlaut Blóðdropann í fyrra fyrir bók sína Petsamo, Stefán Máni og Yrsa Sigurðardóttir.
Dómnefnd verðlaunanna í ár skipuðu Guðrún Ögmundsdóttir, Vera Knútsdóttir og Páll Kristinn Pálsson og höfðu þau að eigin sögn úr vöndu að ráða. Alls komu 14 glæpasögur út á síðasta ári og eftirfarandi titlar til greina hjá dómnefnd:
- Búrið – Lilja Sigurðardóttir (JPV / Forlagið)
- Fuglaskoðarinn – Stefán Sturla (Ormstunga)
- Gatið – Yrsa Sigurðardóttir (Bjartur)
- Mistur – Ragnar Jónasson (Bjartur)
- Morðið í Gróttu – Stella Blómkvist (Mál og menning / Forlagið)
- Morðið í leshringnum – Guðrún Guðlaugsdóttir (GPA)
- Myrkrið veit – Arnaldur Indriðason (Vaka-Helgafell / Forlagið)
- Refurinn – Sólveig Pálsdóttir (Salka)
- Samsærið -Eiríkur Bergmann (Sögur)
- Skuggarnir – Stefán Máni (Sögur)
- Stúlkan sem enginn saknaði – Jónína Leósdóttir (Mál og menning)
- Umsátur – Róbert Marvin (Draumsýn)
- Vályndi – Friðrika Benónýsdóttir (Sögur)
- Vefurinn – Magnús Þór Helgson (Óðinsauga)
Við hjá Forlaginu óskum Lilju innilega til hamingju með verðlaunin!