Mikið stuð í Smáralind

Birgitta Haukdal sló í gegn í Smáralind

Birgitta Haukdal og dóttir hennar, Saga Júlía, ásamt Láru og Ljónsa frá Þjóðleikhúsinu, fylltu Smáralindina i síðustu viku þegar þau tróðu þar upp. Fjöldi fólks lagði leið sína í Smáralind til að horfa á þau syngja og sprella, ásamt því að gæða sér á veitingum og fá áritun frá rithöfundinum Birgittu Haukdal.

Birgitta var alsæl með móttökurnar og mjög þakklát öllum þeim sem mættu í Smáralindina og fögnuðu með henni útgáfu bókanna. „Þetta var ótrúlega skemmtilegt og ég vona að allir hafi skemmt sér jafn vel og ég,“ sagði Birgitta.

Stóri Láru og Ljónsa dagurinn var haldinn í tilefni þess að Birgitta var að gefa út þrjár nýjar bækur hjá Forlaginu um Láru og Ljónsa: Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa, Lára fer á jólaball og Lára missir tönn. Hægt er að nálgast allar bækurnar í netverslun Forlagsins, forlagid.is, eða með því að smella hér. Einnig er hægt að sjá leikrit um Láru og Ljónsa í Þjóðleikhúsinu og kaupa ýmsar Láru og Ljónsa vörur í Hagkaup.

Hér má sjá nokkrar myndir frá deginum:

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning