Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Meistararnir
Útgefandi: JPV
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 217 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 217 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Þegar Rósant er tíu ára, árið 1972, fer hann með afa sínum og nafna á Evrópumót öldunga í frjálsum íþróttum í Finnlandi. En happakringlan hverfur skömmu fyrir brottför og gullverðlaunin sem afinn taldi vís eru í hættu.
Þegar íslensku íþróttamennirnir koma til Finnlands opnast heill ævintýraheimur fyrir Rósant litla og ljóst verður að stærstu áskoranirnar eru ekki alltaf inni á keppnisvellinum.
Meistararnir er í senn gamansöm og hlý frásögn af breyskum mönnum. Hér rekast dularfullir og framandi heimar bernskunnar á við heim hinna fullorðnu, þar sem ekki er allt jafn slétt og fellt og yfirborðið gefur til kynna. Hjörtur Marteinsson hefur áður sent frá sér verðlaunabækurnar AM 00 og Alzheimertilbrigðin. Meistararnir er hans fimmta bók.
3 umsagnir um Meistararnir
Arnar Tómas –
„Skáldsagan Meistararnir eftir Hjört Marteinsson veitir einstaka innsýn í það hvernig heimur hinna fullorðnu lítur út með augum barns.“
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir / Morgunblaðið
Eldar –
„Meistararnir eftir Hjört Marteinsson er skemmtileg og fyndin ádeila á skrumið í kringum íþróttir og hvernig margt skrýtið nær að þrífast í andrúmslofti samkeppni.“
Steingerður Steinarsdóttir / Vikan
Eldar –
„Frjálsar íþróttir öldunga eru viðfangsefni nýútgefinnar skáldsögu Hjartar Marteinssonar, Meistararnir, sem lýsir menningarkimanum á glettinn hátt. (…) Í þessum áhugaverða heimi er að finna bráðskemmtilegar manngerðir, sterkan tíðaranda og gífurlegt keppnisskap.“
Arnar Tómas Valgeirsson / Morgunblaðið