Landkostir – úrval greina um sambúð lands og þjóðar, 1927-1984
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 215 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Landkostir – úrval greina um sambúð lands og þjóðar, 1927-1984
990 kr. – 3.490 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 215 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Allan sinn höfundarferil var Halldór Laxness ötull samfélagsrýnir og skrifaði beittar ritgerðir og blaðagreinar samhliða skáldskapnum.
Það ríkti aldrei lognmolla í skrifum hans og hann var óhræddur við að tyfta samlanda sína og taka sér stöðu barnsins sem bendir á klæðleysi keisarans. Mörgum mislíkaði hreinskiptni skáldsins og óbilgirni gagnvart heimsku og heimóttarskap, en öðrum urðu þessar gagnrýnu greinar ómetanlegur innblástur.
Hér hefur verið safnað saman greinum sem Halldór skrifaði á löngu árabili um sambúð lands og þjóðar – umhverfið sem við hrærumst í og umgengni okkar við það. Sumar greinanna bera augljós merki þess að vera innlegg í deilumál síns tíma, aðrar hafa víðari skírskotun, en allar eiga þær erindi við samtímann, ýmist sem merkilegar heimildir um málefni sem brunnu á fólki á liðinni öld eða sem sígild sannindi og áríðandi boðskapur sem ekki fyrnist.
Halldór Þorgeirsson valdi greinarnar.
2 umsagnir um Landkostir – úrval greina um sambúð lands og þjóðar, 1927-1984
gudnord –
„Óhemjulega skemmtilegir textar … Talar inn í umræðuna í dag.“
Þorgeir Tryggvason/Kiljan
gudnord –
„Auðvelt aflestrar og skemmtilegt. Hann er svo orðsnjall.“
Sunna Dís/Kiljan