Núvitund – hagnýt leiðsögn til að finna frið í hamstola heimi
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2018 | 287 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Núvitund – hagnýt leiðsögn til að finna frið í hamstola heimi
990 kr. – 4.290 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2018 | 287 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Núvitund er einstök bók sem kennir þér einfalda aðferð til slökunar og hugleiðslu; æfingar sem þú getur notað til að rjúfa vítahring kvíða, streitu, vansældar og þreytu og öðlast í staðinn lífsgleði, vellíðan og kjark til að takast á við vandamál og byrðar daglegs lífs.
Núvitundaraðferðin byggist á rannsóknum vísindamanna sem telja hana jafn áhrifaríka og lyfjagjafir til forvarnar gegn þunglyndi. Hún er ekki síður gagnleg fyrir fólk sem finnst einfaldlega erfitt að standa undir kröfum nútímans um athygli og árangur. Þú þarft aðeins fáeinar mínútur á dag til að ná stjórn á lífi þínu, verða fær um að njóta þess í botn og öðlast innri ró.
Mark Williams var prófessor í klínískri sálfræði við Oxfordháskóla. Hann er einn af upphafsmönnum núvitundarmeðferðar og hefur skrifað metsölubækur um notkun hugleiðslu gegn þunglyndi. Danny Penman er lífefnafræðingur, hugleiðslukennari, rithöfundur og blaðamaður sem unnið hefur til fjölda verðlauna fyrir bækur sínar.
Guðni Kolbeinsson þýddi bókina.
Hér má hlýða á upplestur á hugleiðsluæfingunum úr bókinni:
1 umsögn um Núvitund – hagnýt leiðsögn til að finna frið í hamstola heimi
Eldar –
„Núvitund á erindi til allra (…) Væntingar, kröfur og mikill hraði er áskorun í samfélaginu í dag. Við setjum markið hátt í lífinu og gleymum stundum að staldra við og spyrja hvað skiptir okkur raunverulega máli.”
Anna Dóra Frostadótir sálfræðingur og leiðbeinandi / Núvitundarsetrið