Draumsverð: Þriggja heima saga #2
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 555 | 3.290 kr. | ||
Rafbók | 2015 | 990 kr. |
Draumsverð: Þriggja heima saga #2
990 kr. – 3.290 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 555 | 3.290 kr. | ||
Rafbók | 2015 | 990 kr. |
Um bókina
Innsiglin sjö sem vitringarnir skópu fyrir nærri þúsund árum eru að rofna. Skuggarnir geta því aftur snert heimana þrjá og eftir að manngálkn þeirra réðust á þorpið Vébakka hafa Ragnar, Breki og Sirja verið á flótta. Leið þeirra liggur nú suður á bóginn, inn í Yglumýri, þar sem nornin Heiðvíg Ormadróttin er sögð dvelja. Með aðstoð Nanúks, dularfulla veiðimannsins úr norðri, verða krakkarnir að bjóða dauðanum birginn í myrkviðum mýrarinnar. Þar bíða þeirra ógurleg skrímsli og Sirja heyrir gamalkunnan en þó framandi söng.
Draumsverð er önnur bókin í Þriggja heima sögu, æsispennandi sagnaflokki þar sem blóðgaldrar, falin leyndarmál og gleymdar óvættir ógna heimunum öllum. Fyrsta bókin, Hrafnsauga, hlaut gríðargóðar viðtökur lesenda á öllum aldri, hreppti Íslensku barnabókaverðlaunin og var valin unglingabók ársins af bóksölum.
2 umsagnir um Draumsverð: Þriggja heima saga #2
Kristrun Hauksdottir –
„Kröftugt og spennandi framhald Hrafnsauga. Fantasía með breiðri vísun, sannferðugum persónum og góðri sögu.“
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið
Kristrun Hauksdottir –
„Fyrri bókin í sagnabálknum Þriggja heima sögu, Hrafnsauga, hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 2012 og stóð vel undir því. Þessi, sem segir líka frá ferðaraunum Ragnars, Breka og Sirju, er enn betri, mun betur skrifuð og framvindan ævintýralegri.“
Árni Matthíasson / Morgunblaðið