Hrafnsauga: Þriggja heima saga #1
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 383 | 3.290 kr. | ||
Rafbók | 2015 | 990 kr. |
Hrafnsauga: Þriggja heima saga #1
990 kr. – 3.290 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 383 | 3.290 kr. | ||
Rafbók | 2015 | 990 kr. |
Um bókina
Nær þúsund ár eru liðin frá því myrkraöldin leið undir lok, þegar vitringarnir sjö komu saman og sigruðu skuggana. Hin myrka tíð hefur að mestu gleymst. En þótt minni manna sé brigðult gleyma hin fornu öfl engu.
Innvígsluhátíðin nálgast, dagurinn þegar þulnameistarinn tilkynnir Ragnari, Breka, Sirju og jafnöldrum þeirra í þorpinu hvaða hlutverkum og skyldum þeim er ætlað að gegna. Krakkarnir ættu að njóta seinustu áhyggjulausu daganna í sumarsólinni en framtíðin ber annað í skauti sér. Án þess að friðsælir þorpsbúarnir viti af því hefur óstöðvandi atburðarás verið hrundið af stað. Hin fornu öfl sem eitt sinn steyptu heiminum í aldalanga nótt hafa vaknað og manngálkn þeirra eru aftur farin á stjá. Þau sækjast eftir einhverju í þorpinu, einhverju sem hefur verið falið í norðrinu frá ómunatíð. Fyrr en varir eru krakkarnir dregnir inn í atburði og ráðabrugg sem þeir hafa engan skilning á og komast að því að gjörðir þeirra skipta sköpum fyrir örlög þriggja heima.
Hrafnsauga er fyrsta bókin í Þriggja heima sögu, æsispennandi sagnaflokki þar sem blóðgaldrar, falin leyndarmál og gleymdar óvættir ógna heimunum öllum. Þetta er fyrsta skáldsaga Kjartans Yngva Björnssonar og Snæbjörns Brynjarssonar, og bar sigur úr býtum í samkeppninni um Íslensku barnabókaverðlaunin 2012 og hlaut Bóksalaverðlaunin sem besta táningabókin árið 2012.
3 umsagnir um Hrafnsauga: Þriggja heima saga #1
Kristrun Hauksdottir –
„Ef þessi bók læðist í pakkann hjá barninu þínu mæli ég með að þú nappir henni og færð að lesa hana næst á eftir unglingnum á heimilinu, því þetta er frábær ævintýrasaga!“
Sigrún Þöll / pjattrofurnar.is
Kristrun Hauksdottir –
„Hrafnsauga er sígilt ævintýri, klassísk fantasía, stórskemmtileg og spennandi, og afskaplega vel skrifuð.”
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir / Fréttablaðið
Kristrun Hauksdottir –
„… vel skrifuð og skemmtileg bók … Sagan gerist í heimi sem er allfrábrugðinn okkar, heimi með sína eigin goðafræði og sína eigin sögu sem er gríðarvel heppnuð, forvitnileg og sveipuð dulúð … er hér komið upphaf að mögnuðum sagnabálki.“
Árni Matthíasson / Morgunblaðið