Ertu Guð, afi?
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 990 kr. | |||
Innbundin | 2010 | 133 | 3.190 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 990 kr. | |||
Innbundin | 2010 | 133 | 3.190 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 990 kr. |
Um bókina
Emma Soffía er ellefu ára, á pabba sem er alltaf úti á sjó og mömmu sem reynir sig reglulega við Íslandsmetið í fýlu. Hún hefur aldrei séð afa sinn fyrr en hann birtist á tröppunum með hundinn Tarzan og eftir það verður ekkert eins og áður. Afi tyggur matinn 77 sinnum (auðvitað – hann er nú einu sinni 77 ára), getur hætt að anda og svifið út úr líkamanum, er furðulega góður í fótbolta (miðað við aldur) og fyrr en varir eru allir í hverfinu farnir að tala um hann.
Ertu Guð, afi? er hlý og skemmtileg saga eftir Þorgrím Þráinsson sem um árabil hefur verið einn ástsælasti barnabókahöfundur þjóðarinnar. Hér leiðir hann lesendur sína á ný mið í fylgd heillandi persóna sem eru í senn djúpvitrar og gamansamar. Sagan var valin úr fjölda handrita sem bárust í samkeppnina um Íslensku barnabókaverðlaunin 2010.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
María Lovísa Guðjónsdóttir les.
4 umsagnir um Ertu Guð, afi?
Kristrun Hauksdottir –
„Saga um einstaka vináttu, um það að lifa lífinu og kunna að meta það … góð áminning um gildi og gæði lífsins.“
Skorningar, RÚV
Kristrun Hauksdottir –
„Mér finnst þetta merkileg bók … falleg og óvenjuleg.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan, RÚV
Kristrun Hauksdottir –
„Höfundi er mikið niðri fyrir en höndlar efnið af næmleik og stillingu … Fyrir bragðið gefst ungum lesendum kostur á sögu sem vill leiða þau lengra og sýna þeim lífsskoðanir sem sjaldan rekur inn í bækur fyrir aldurshópinn ellefu plús.”
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn
Kristrun Hauksdottir –
„Ertu Guð, afi? er falleg saga, innihaldsrík, afskaplega vönduð og sögð á leikandi léttan hátt. Þetta er bók sem ætti að höfða bæði til barna sem fullorðinna enda full af fallegum boðskap sem á erindi til allra.“
Ingveldur Geirsdóttir / Morgunblaðið