Stálnótt
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2017 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2017 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. |
Um bókina
Fjaran nötrar. Hljómmiklar drunurnar hækka enn. Svart ónáttúrulegt form rís úr öldurótinu. Sterkir ljósglampar kljúfa rautt hafið. Með ógurlegum hvin slítur bifreiðin sig frá útsoginu. Eykur ferðina og staðnæmist með hnykk. Þetta er nóttin þegar Johnny Triumph stígur á land, „langur og grannur, dökkhærður, með dáralokk í spíss niður á mitt enni og brún sólgleraugu í gilltri sporöskjulaga umgjörð“. Og hvílík nótt: Jonninn, Finnurinn, Dísan og annan urðu ekki söm eftir. Og samtímis stígur Sjón fram á svið íslensk sagnaskáldskapar eftir fjölmargar ljóðabækur, frumlegur, myndvís og harðsvíraður. Hann sest undir stýri, skellir aftur hurðinni, rennir augunum eftir landinu, í vestur, í átt til borgarinnar.
Stálnótt er fyrsta skáldsaga Sjóns, hún kom upphaflega út árið 1987 en hefur verið ófáanleg um árabil.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 1 klukkustund og 43 mínútur að lengd. Arnmundur Ernst Backman les.
2 umsagnir um Stálnótt
Kristrun Hauksdottir –
„Bókina má skoða sem sköpunarsögu hugarfósturs sem fæðist eins og djöfull í heim engla.“
Ólafur Engilsbertsson / Helgarpósturinn, 1987
Kristrun Hauksdottir –
„Það má kannski líka með nokkrum rétti halda því fram að Stálnótt sé ekki skáldsaga, heldur ljóðaflokkur, en ég fæ ekki séð að það skipti nokkru máli. Ekki frekar en spurningar um það hvort Sjón sé súrrealisti, dadaisti, fútúristi eða frík, skipta máli; hann er skáld.“
Friðrika Benónýs / Morgunblaðið 1987