Dalalíf – allar 5 hljóðbækurnar í pakka

Útgefandi: Hljóðbók
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Geisladiskur 2013 Mp3 9.490 kr.
spinner

Dalalíf – allar 5 hljóðbækurnar í pakka

Útgefandi : Hljóðbók

9.490 kr.

Dalalif -5 í pakka
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Geisladiskur 2013 Mp3 9.490 kr.
spinner

Um bókina

Hljóðbókapakki með öllum 5 bindum Dalalífs: Æskuleikir og ástir, Alvara og sorgir, Tæpar leiðir, Laun syndarinnar og Logn að kvöldi.

Á Nautaflötum í Hrútadal býr Jakob Jónsson stórbúi með Lísibet konu sinni. Sá einn skuggi hvílir á búsæld þeirra og auðsæld að þeim hjónum verður ekki barns auðið. En níu mánuðum eftir að hinn káti og drykkfelldi stúdent Hallgrímur hefur dvalið á Nautaflötum sér til heilsubótar, fæðir Lísibet erfingjann; Jón Jakobsson. Þá hefst mikil örlagasaga, saga af ástum, sorgum og sviptingum í lífi fólksins í Hrútadal í rúm sextíu ár á einum mesta umbyltingartíma í lífi þjóðarinnar.

Dalalíf, fyrsta skáldsaga Guðrúnar Árnadóttur frá Lundi, kom út á árunum 1946 til 1951, þegar skáldkonan var um sextugt. Guðrún frá Lundi er einn af meisturum íslenskra sagnabókmennta og hvergi í verkum hennar nýtur frásagnargleðin sín jafn vel og í Dalalífi. Hispurslausar lýsingar skáldkonunnar á fólkinu í dalnum, gleði þess og sorgum, kostum þess og breyskleika, eru heillandi vitnisburður um horfna tíð sem höfðar til lesenda svo lengi sem það er hlutskipti manna að elska, vona og dreyma.

ATH. Hljóðbækurnar eru aðeins til á geisladiskum (CD eða Mp3) sem eru afhentir í pósti eða sóttir í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning