Þar sem land og haf haldast í hendur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 509 | 6.790 kr. |
Þar sem land og haf haldast í hendur
6.790 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 509 | 6.790 kr. |
Um bókina
Þar sem land og haf haldast í hendur – Súðavíkurhreppur að fornu og nýju er yfirlitsrit um sögu Súðavíkurhrepps hins forna og er sagan rakin frá landnámi og fram yfir flutning byggðar í kjölfar snjóflóðanna 1995, auk viðbótarkafla um Súðavík á nýrri öld.
Saga hins fámenna Súðarvíkurhrepps speglar vel þjóðarsöguna í smækkaðri mynd. Íbúar hreppsins hafa allt frá upphafi sótt björg sína jöfnum höndum til lands og hafs; þegar nálæg fiskimiðin voru gjöful dró heldur úr landbúnaðinum, en þegar gæftir brugðist bættu menn í búskapinn til landsins. Íbúar hreppsins voru jafnan háðir árferði til lands og sjávar, fólki fækkaði í hremmingum en fjölgaði fljótt aftur er lifnaði yfir á ný.
Nálægðin við gjöful fiskimið og góð skipalægi urðu til þess að erlend kaupskip og síðar hvalfangarar komu sér upp aðstöðu í Súðavíkurhreppi og höfðu mótandi áhrif á byggðarlagið. Þróun byggðarinnar er jafnframt sérstök að því leyti að þegar sjávarþorp tók að myndast byggðist þorpið ekki upp á hentugri eyri, Langeyri, sem býður upp á einstaklega góð hafnarskilyrði. Þess í stað reistu menn sér hús í landi stöndugra útvegsbænda umhverfis Súðavíkina, þar sem fiskimiðin voru nálæg útræði árabátanna.
Náttúröflin geta verið óvægin á þessum fögru slóðum við Djúpið og fyrir því hafa íbúarnir iðulega fundið. Sorgin hefur margoft sótt byggðarlagið heim; tíðir bátsskaðar hafa höggvið skörð í fámenna byggð um langa hríð og snjóflóðin ógnarlegu árið 1995 urðu til þess að breyta byggðinni varanlega. En ævinlega hafa íbúarnir tekist á við missinn og sársaukann með samheldni og vilja til að búa áfram í hinum sérstæða Álftafirði.
Eiríkur P. Jörundsson, sagnfræðingur, hefur skráð sögu sveitarfélagsins og búið hana fjölmörgum ljósmyndum. Hann dregur upp heilsteypta og minnisstæða mynd af byggðarlagi sem sannarlega er smátt í heildarsamhenginu – en samt svo óumræðilega stórt í hugum þeirra sem þar hafa búið og dvalist.