Draumahöllin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2013 | 223 | 1.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2013 | 223 | 1.690 kr. |
Um bókina
Súsanna fæddist blind og þrátt fyrir nokkrar skurðaðgerðir í æsku var henni gefin lítil von um bata. Sem barn naut hún þess að hlusta á tónlist og sérstaklega þess að heyra óminn frá Vikbiholm-höllinni þar sem hinn ungi og glæsilegi Edward greifi spilaði listavel á píanó daginn út og inn. – Það var annað en Walter, hinn skapheiti bróðir hans, sem virtist hafa rótgróna andúð á Edward og föður sínum.
Mörgum árum síðar, eftir mikið andstreymi, höguðu örlögin því þannig að draumur Súsönnu rættist – hún trúlofaðist Edward. Skömmu síðar gekkst hún undir skurðaðgerð sem að þessu sinni tókst og hún öðlaðist langþráða sjón ... Nú stóð unnusti hennar í dyrum sjúkrastofunnar og í næstu andrá hvíldi hún í faðmi hans og endurgalt heita kossa og ástarorð. Skyndilega stirðnaði hún í örmum hans ... var þetta ekki örugglega Edward?
Fleira kemur í ljós. Hvers vegna hafði stjúpmóðir Súsönnu logið til um fjárhag hennar og hver var ökufanturinn sem myrti gamla greifann?