Passíusálmarnir
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 211 | 3.490 kr. | ||
Kilja | 2017 | 211 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 211 | 3.490 kr. | ||
Kilja | 2017 | 211 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. |
Um bókina
Það er ógaman að lenda í skáldum: verða fyrirvaralaust persóna í skáldverki þar sem allt er meira og minna fært í stílinn ef því er ekki hreinlega snúið á haus. Margir þekkja sögu Einars Kárasonar um Eyvind Jónsson Storm, sem lengi bjó í Danmörku og var lýst sem heldur vafasömum karakter. Í þeirri frásögn var svo margt úr lagi fært að ekki verður lengur við unað. Rétt skal vera rétt.
Hér grípur Stormur til varna, skýrir sitt mál og leiðréttir missagnir. Höfundurinn skýtur þó líka inn sínum sjónarmiðum og athugasemdum, milli þess sem vinir og vandamenn Stormsins leggja orð í belg, og allt er þetta lagt fyrir lesendur þeim til fróðleiks – eða að minnsta kosti skemmtunar.
Passíusálmarnir eru óviðjafnanleg lesning sem snýr upp á skáldsöguformið; Eyvindur Stormur og Einar Kárason leiða saman hesta sína svo úr verður kostuleg og margslungin gamansaga.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 5 klukkustundir og 28 mínútur að lengd. Höfundur les.
8 umsagnir um Passíusálmarnir
Árni Þór –
„… sprúðlandi skemmtileg lesning … Eyvindur Jónsson Stormur er siðblindur og Einari Kárasyni tekst á snilldarlegan og kómískan hátt að sýna fram á hvernig slíkar persónur virka í samfélaginu.“
Sigríður Albertsdóttir / Víðsjá
Árni Þór –
„Stórkostlegir karakterar.“
Sunna Dís Másdóttir / Kiljan
Árni Þór –
„Stórskemmtilegt.“
Þorgeir Tryggvason / Kiljan
Árni Þór –
„Stormur er ótrúlega skemmtileg persóna.“
Egill Helgason / Kiljan
Árni Þór –
„Einstaklega fyndin og vel skrifuð bók … Einar er hér í fantastuði og Passíusálmarnir eru stórskemmtilegir.“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan
Árni Þór –
„… einkar þægileg og skemmtileg bók aflestrar. Frásögnin öll er svo vel byggð og haganlega fléttuð að meira að segja lesendur sem kunna að vera í þeirri ólíklegu stöðu að hafa aldrei lesið skáldsöguna um Storm þurfa ekkert að óttast … ein hans frumlegasta og óvæntasta skáldsaga. En í senn er hún staðfesting á hversu föstum fótum Einar stendur í íslenskum sagnaheimi og skáldskaparlist … Bráðskemmtileg endurkoma Storms í nýstárlegri skáldsögu sem stendur engu að síður föstum fótum í íslenskri sagnahefð.“
Magnús Guðmundsson / Fréttablaðið
Árni Þór –
„Mikill og nútímalegur sagnamaður sem stendur þó styrkum fótum í íslenskri sagnahefð.“
Literaturen
Árni Þór –
„Mér fannst þessi höfundur meira en lítið góður með sig.“
Eyvindur Jónsson Stormur