Máttur matarins
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 280 | 6.390 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 280 | 6.390 kr. |
Um bókina
Hvaða matur styrkir líkamann og bætir heilsuna? Hvaða fæðutegundir ættum við að forðast? Á hverjum einasta degi tökum við fjölda ákvarðana sem móta líf okkar og hafa áhrif á heilsuna, nú og í framtíðinni, og því er ein mikilvægasta forvörnin gegn sjúkdómum að koma sér upp góðum lífsvenjum. Krabbamein er ein helsta sjúkdómsvá nútímans og rannsóknir hafa leitt í ljós að þar getur mataræði haft mikil áhrif.
Í þessari bók er að finna mikinn fróðleik um næringu og heilbrigðar lífsvenjur, ásamt fjölda girnilegra, aðgengilegra og hollra uppskrifta sem henta allri fjölskyldunni. Sjáðu sýnishorn!
Unnur Guðrún Pálsdóttir (Lukka) og Þórunn Steinsdóttir eru þekktar fyrir áhuga sinn á matargerð, hollum lifnaðarháttum og forvörnum gegn krabbameini og öðrum sjúkdómum. Þær hafa hér fengið til liðs við sig lækna og annað fagfólk til að skrifa bók sem getur nýst öllum sem vilja efla heilsuna og varnir líkamans gegn vágestum. Ljósmyndirnar í bókinni eru eftir Gunnar Sverrisson.
1 umsögn um Máttur matarins
Árni Þór –
„Fjölda freistandi uppskrifta er að finna í bókinni sem er afar fróðleg og eiguleg og fallega myndskreytt. Þetta er hin besta heilsubiblía sem hvetur mann til að setja heilsuna í fyrsta sæti.“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan