Fjögur skáld: upphaf nútímaljóðlistar á íslensku
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2014 | 240 | 3.620 kr. |
Fjögur skáld: upphaf nútímaljóðlistar á íslensku
3.620 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2014 | 240 | 3.620 kr. |
Um bókina
Hér fjallar Þorsteinn Þorsteinsson um ljóð fjögurra íslenskra skálda á fyrri hluta síðustu aldar. Skáldin eru vel kunn: Jóhann Sigurjónsson, Jóhann Jónsson, Halldór Kiljan Laxness og Steinn Steinarr, og í brennidepli eru þau ljóð þeirra sem mestum tíðindum sættu á sínum tíma vegna nýjunga sem áður höfðu lítt eða ekki þekkst í íslenskri ljóðlist.
Auk almennra ljóðskýringa eru raktir þræðir frá þróun sem hófst á seinni hluta 19. aldar og hefur verið kennd við módernisma, og hugað að ætterni ljóða. Niðurstöður eru um margt frábrugðnar fyrri skýringum á íslenskri ljóðlistarsögu þessa tíma.
Þorsteinn Þorsteinsson hefur getið sér afar gott orð fyrir bókmenntarannsóknir sínar, ekki síst umfjöllun um íslenska ljóðlist á 20. öld. Fyrir bók sína Ljóðhús, um skáldskap Sigfúsar Daðasonar, hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin 2007.
2 umsagnir um Fjögur skáld: upphaf nútímaljóðlistar á íslensku
Kristrun Hauksdottir –
„… mikill fengur að bókinni Fjögur skáld fyrir alla sem hafa áhuga á ljóðlist. Það er hvort tveggja skemmtilegt og fróðlegt að endurvitja þessara ljóða í fylgd Þorsteins, leyfa honum að sýna sér nýjar hliðar á þeim frægustu og uppgötva önnur sem hlotið hafa minni athygli.“
Kári Páll Óskarsson
Kristrun Hauksdottir –
„Bók Þorsteins er einkar fjörlega skrifuð … vel skrifuð og ánægjulegur lestur.“
Sölvi Sveinsson / Morgunblaðið