Íslendingablokk
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 180 | 1.550 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 180 | 1.550 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
Þau eru mörg og ólík: Indriði tollari, ekkjumaður við ævilok sem lifir í ríkum mæli það sem hann á „ólifað“, Addi rakari sem á stjörnu í Vetrarbrautinni, skólasálfræðingurinn Kata sem hefur slegið í gegn sem ljóðskáld en á í brösum með framhaldið, Hansi sem er ágætlega kvæntur kynlífsfíkill og Máni sem hefur alið manninn við hjálparstörf í Afríku og hyggur á forsetaframboð. En þau eiga sameiginlegt að búa í sömu blokkinni, Íslendingablokk, og margir fleiri – vinir, kunningjar og ættingjar – koma við sögu. Þó er ótalinn gerandi sem eins og endranær í sögum Péturs ræður úrslitum: sjálf framsetningin eða stíllinn.
Íslendingablokk er hugljúf og fyndin samtímasaga. En þó að hún fjalli um fólk í blokk í Reykjavík hér og nú fer hún víða í tíma og rúmi, jafnvel alla leiðina aftur í Miklahvell …
4 umsagnir um Íslendingablokk
Bjarni Guðmarsson –
„Alltaf gaman að lesa Pétur Gunnarsson … bókin er full af skemmtilegum athugasemdum.“
Eiríkur Guðmundsson / Kiljan
Bjarni Guðmarsson –
„… bútasaumsteppi, fallegt og má skoða það á marga vegu … hlýja og mannskilningur … persónur sem eru ljóslifandi … hrikalega fyndinn.“
Sigurður Valgeirsson / Kiljan
Bjarni Guðmarsson –
„Hvert orð skiptir máli, hver mynd er þaulhugsuð og heildaráhrifin eru fjandanum magnaðri. Húmor Péturs nýtur sín hér til fullnustu … Fádæma vel skrifuð saga, leiftrandi af húmor, mannskilningi og hlýju en með grafalvarlegum undirtón.“
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið
Bjarni Guðmarsson –
„Í þessari blokk er einhvernveginn allt að finna: ást og svik, káf og framhjáhald, drauma og langanir, misskilning og vináttu, líf og dauða. Pétri heppnast frábærlega að koma vel byggðum og skemmtilegum heimi fyrir í þessari blokk við Miklubrautina … En svona geta snjallir höfundar skrifað; sagan um Íslendingablokkina er bæði djúp og skemmtileg …“
Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið