Kantata
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 314 | 1.755 kr. | ||
Kilja | 2013 | 312 | 2.685 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 314 | 1.755 kr. | ||
Kilja | 2013 | 312 | 2.685 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
Ljósmyndarinn smellir af og örlög ráðast. Ekki þar og þá heldur annars staðar og síðar. Myndin af parinu er upphaf alls.
Þegar Nanna hugar að gróðrinum sér hún að allt er að fara úr böndum; greinarnar teygja sig upp á veröndina og hún hefur ekki lengur yfirsýn. – Finnur hefur svipaða tilfinningu gagnvart bókhaldi hótelanna; þar er eitthvað sem ekki stemmir. Í stórfjölskyldunni er allt í föstum skorðum og yfirborðið kyrrt. En þegar hægláti útlendingurinn birtist á sviðinu breytist hljómfallið skyndilega og snurða hleypur á annars óaðfinnanlegan þráð …
Kantata Kristínar Marju Baldursdóttur er stórbrotin og margradda fjölskyldusaga þar sem þræðir fléttast, spinnast, vindast og rakna. Náttúran leikur undir; óstýrilátt lífið í garðinum hennar Nönnu, trén, skordýrin, fuglarnir, og svo áin þar sem laxinn stekkur – þar sem dregur til tíðinda.
Kristín Marja Baldursdóttir hefur lengi verið meðal helstu rithöfunda landsins og skrifað fjölda ógleymanlegra sagna sem hlotið hafa frábæra dóma og einstakar viðtökur lesenda heima og erlendis.
5 umsagnir um Kantata
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Höfundinum er einkar vel lagið að láta textann flæða áreynslulaust og oft á ljóðrænan hátt. Ilmur, tónlist, litir, bragð og birta, orðasinfónía, þar sem náttúran, plöntur og dýr eru gjarnan látin tala í eigin persónu.“
Ebba / Hafnarfjörður
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Það er hægt að velta þessu verki fyrir sér út frá ótal vinklum … En sá sem leggur í það ferðalag sem verkið býður upp á verður að ganga inn í það með opnum huga og vera tilbúinn að túlka það sem er ósagt látið …“
Kolbrún Lilja Kolbeinsdóttir / Spássían
Nanna Rögnvaldardóttir –
„… stíllinn og frásagnaraðferðin benda sífellt á að það sem við erum að lesa er skáldskapur. Í þessu felst styrkur bókarinnar sem skáldverks. Þetta er bók sem hægt er að dást að …“
Ásdís Sigmundsdóttir / Víðsjá
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Bókin er ofsalega vel unnin, vel byggð og flott fléttuð.“
Friðrika Benónýsdóttir / Kiljan
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Þetta er vandlega unnin saga, öguð og vel skrifuð með sterkum lokaköflum.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið