Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Fimbulkaldur: Jack Reacher #14
Útgefandi: JPV
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2011 | 406 | 2.370 kr. |
Fimbulkaldur: Jack Reacher #14
Útgefandi : JPV
2.370 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2011 | 406 | 2.370 kr. |
Um bókina
Vetur í Suður-Dakóta. Rúta rennur til, fer út af, situr föst í skafli. Vitni í alvarlegu glæpamáli er vaktað allan sólarhringinn í smábæ skammt frá. Úti á eyðilegri sléttunni er yfirgefin herstöð sem mótorhjólagengi hefur lagt undir sig. Öllu er stjórnað af mikilli grimmd sunnan frá Mexíkó. Jack Reacher er farþegi í rútunni. Hann ferðast ævinlega án farangurs – þegar komið er út í fimbulkuldann reynist það misráðið. Að öðru leyti er hann fær í flestan sjó.
Bækur metsöluhöfundarins Lee Child segja frá einfaranum Jack Reacher. Áður hafa komið út á íslensku spennusögurnar Í frjálsu falli og Friðlaus sem slógu rækilega í gegn.
Salka Guðmundsdóttir þýddi.
3 umsagnir um Fimbulkaldur: Jack Reacher #14
Kristrun Hauksdottir –
„Alltaf er tilhlökkunarefni að fá nýja bók um hörkunaglann Reacher … Þetta er frábær bók og Reacher er einn allra mesti töffari spennubókmenntanna …”
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan
Kristrun Hauksdottir –
„Í anda Philips Marlowe með smávegis frá Rambó og Bruce Willis… Reacher er … karlmannleg andhetja sem gnæfir yfir alla aðra.“
Independent
Kristrun Hauksdottir –
„Það er bara einn Jack Reacher … Þegar kemur að hetjum eru margir kallaðir en í hópi hetja spennusagna er aðeins einn útvalinn – Jack Reacher. Lee Child kann þá list einna manna best að segja spennusögu … Fimbulkaldur er frábær spennubók og enn einu sinni tekst Lee Child að fanga lesandann frá fyrstu síðu til þeirrar síðustu. Það gera bara snillingar og það er bara einn Jack Reacher.”
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið