Carte Blanche – lesbók
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2005 | 4.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2005 | 4.490 kr. |
Um bókina
Carte blanche er kennsluefni sem hentar í fyrstu áföngum í frönsku í framhaldsskóla. Rík áhersla er lögð á að þjálfa færni nemenda í að tjá sig munnlega og skriflega auk þess sem leitast er við að þjálfa lesskilning, málnotkun og málfræði og festa orðaforða.
Lesbókin inniheldur fjölbreytta texta um Frakkland, franskt þjóðlíf og menningu. Bókin er ríkulega myndskreytt og í henni eru auk textanna tillögur að æfingum af ýmsu tagi sem hafa það að markmiði að örva nemendurna til að tjá sig munnlega og skriflega. Bókinni fylgir geisladiskur með vönduðum upplestri franskra leikara á textunum í bókinni auk fjölda hlustunaræfinga.
Í æfingabók sem tengist lesbókinni eru fjölmörg verkefni sem þjálfa málfræði og málnotkun og vekja nemendur til vitundar um rétt mál.
Kennsluefnið er samið af sérfræðingum í frönsku og frönskukennslu og þýtt og staðfært af frönskukennurunum Elisabeth Rodrigues Moura, Grétari Skúlasyni og Margréti Helgu Hjartardóttur.
Hlustunarefni er aðgengilegt á kennarasíðu Forlagsins.