Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Sögur, ljóð og líf
Útgefandi: VH
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 1998 | 4.890 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 1998 | 4.890 kr. |
Um bókina
Tuttugasta öldin er stormasamt en um leið frjósamt skeið í íslenskri bókmenntasögu. Sögur, ljóð og líf fjallar á aðgengilegan hátt um þetta einstaka tímabil, allt frá nýrómantík til póstmódernisma, og er ætluð til kennslu í íslenskri bókmenntasögu á framhaldsskólastigi en er ekki síður gagnleg áhugafólki um bókmenntir.
Í bókinni er gerð grein fyrir stefnum og straumum í íslenskum bókmenntum, fjallað um fjölda verka einstakra höfunda og sjónum beint að þjóðfélagsþróun á öldinni og hvernig hún speglast í bókmenntum.
- Íslenskar bókmenntir á 20. öld í hnotskurn.
- Skáldatal þar sem gerð er sérstök grein fyrir rúmlega 100 rithöfundum og skáldum.
- Fjöldi mynda af höfundum, listaverkum, sögulegum atburðum og bókarkápum.
- Helstu bókmenntastefnur skýrðar og settar í alþjóðlegt samhengi í stuttu máli í sjálfstæðum köflum.
- Ýtarlegar nafna- og atriðisorðaskrár.
Höfundur bókarinnar, Heimir Pálsson cand.mag., hefur áratuga reynslu af kennslubókagerð og kennslu í íslensku á framhaldsskólastigi.