Óreiða á striga
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 1.490 kr. | ||
Kilja | 2008 | 541 | 2.390 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 1.490 kr. | ||
Kilja | 2008 | 541 | 2.390 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
Karitas Jónsdóttir fetar aðra slóð í lífinu en fjölskylda hennar og samferðafólk vill marka henni. Ung fór hún í myndlistarnám en lenti í barneignum; eftir tveggja áratuga basl virðist frelsið loksins blasa við. Blóðböndin eru þó sterk og hvort sem leiðin liggur til Eyrarbakka, Parísar, Rómar eða í kvennakommúnu við Laugaveginn í Reykjavík, þá þarf hún að þjóna bæði listinni og ástinni, frelsinu og sínu fólki.
Óreiða á striga er sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Karitas án titils sem hlaut frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. Hér er á ferð stórbrotin og kröftug þroskasaga konu sem fer sínar eigin leiðir, en um leið skörp ádeila; þetta er öðrum þræði aldarsaga, saga þjóðfélags í mótun, saga kvenna og frelsisbaráttu, saga um ást og harm og margbrotið mannlíf. Þessi mikla og heillandi skáldsaga er allt í senn; viðburðarík, fyndin og sorgleg, enda hefur höfundur slík tök á lesanda að líkja má við galdur.
Kristín Marja Baldursdóttir hefur verið einn vinsælasti rithöfundur landsins frá því hún sló fyrst í gegn með Mávahlátri. Bækur hennar hafa komið út víða um lönd og hvarvetna fengið frábæra dóma.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 19 klukkustundir og 44 mínútur að lengd. Höfundur les.
6 umsagnir um Óreiða á striga
Nanna Rögnvaldardóttir –
,,Óreiða á striga er einstaklega vel skrifuð bók, með ótrúlegt aðdráttarafl, ég varð hreinlega gagntekinn af bókinni. Kristín Marja Baldursdóttir hefur með bókum sínum um listakonuna Karítas tvímælalaust skipað sér í röð allra bestu rithöfunda samtímans.”
Hallfríður Þórarinsdóttir / Kistan.is
Nanna Rögnvaldardóttir –
,,Maður tárast með henni af gleði þegar hún lítur snilldarverkin sem hún hafði þráð svo heitt að sjá en sem ástin og börnin höfðu komið í veg fyrir að hún sæi þegar hún þurfti mest á því að halda.”
Silja Aðalsteinsdóttir / tmm.is
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Sagan er bæði fyndin og dramatísk og á stundum bregður fyrir kostulegri íróníu sem skapar vel heppnaða margröddun innan textans.”
Úlfhildur Dagsdóttir / bokmenntir.is
Nanna Rögnvaldardóttir –
“Óreiða á striga er breið og stórskemmtileg mannlífslýsing, mögnuð saga samfélags og kvenfrelsis á Íslandi um leið og þetta er saga allraþreyttra þvottakvenna heimsins.“
Steinunn Inga Óttarsdóttir / Morgunblaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Mikil dramatík … skilar sér beint í æð … lýsing á móðurhlutverki afskaplega sterk … höfundur veltir fyrir sér áleitnum spurningum um kúgun kvenna … meðvituð kvennasaga með öllu því sem fylgir.“
Auður Aðalsteinsdóttir / Víðsjá, RÚV
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Vinsælasti rithöfundur þjóðarinnar … Þetta er stórt og mjög metnaðarfullt verk … saga um örlög konu og svo er þetta aldarspegill … stórbrotin örlagasaga.“
Egill Helgason / Kiljan