Morð og myndir
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2006 | 2.180 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2006 | 2.180 kr. |
Um bókina
(M)orð & myndir er fyrsta ljóðabók Sindra Freyssonar í sjö ár en síðasta ljóðabók hans, Harði kjarninn (njósnir um eigið líf), var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og fékk einróma lof gagnrýnenda. Verk eftir hann hafa m.a. verið þýdd á ensku, frönsku, þýsku, grísku, sænsku og finnsku.
Hákon Pálsson hefur fengist við ljósmyndun um nokkurt skeið en (M)orð & myndir er fyrsta bókin sem hann myndskreytir. Hann hefur haldið eina ljósmyndasýningu og tekið myndir fyrir tímarit.
Bók fyrir alla sem lifa
Bók fyrir alla sem deyja
Eða hafa dáið ?
Dauðinn hefur aldrei verið jafn skemmtilegur!
Nútímamaðurinn hefur fjarlægst dauðann, dularfyllsta hluta lífsins, þrátt fyrir að hann sé sínálægur í afþreyingarmiðlum.
Hér bregður Sindri Freysson á fjörugan og óvæntan leik með nokkrar af ótal birtingarmyndum dauðans, afhelgar hann og kannar þessa botnlausu uppsprettu ráðgátna með flugbeitta kímnigáfu að vopni. Frumleg og skörp sýn og einstök stílgáfa gera (M)orð & myndir að ógleymanlegri hraðferð sköpunarkraftsins um ríki dauðans.
Ljóðin kallast með áhrifamiklum hætti á við ljósmyndir Hákonar Pálssonar.
[domar]
"Viðfangsefni, sem margur hefði tekið á með silkihönskum og hjúpað væmni og tilfinningasemi, verður Sindra uppspretta frumlegrar og skapandi orðanotkunar og óvæntra mynda. Hvergi dauður punktur."
Steinunn Inga Óttarsdóttir / Morgunblaðið
[domar]