Dauði trúðsins
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2007 | 391 | 2.200 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. | |||
Geisladiskur | 2007 | Mp3 | 1.590 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2007 | 391 | 2.200 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. | |||
Geisladiskur | 2007 | Mp3 | 1.590 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 690 kr. |
Um bókina
Í Dauða trúðsins glímir Einar blaðamaður við ráðgátu sem leiðir hann í senn á refilstigu íslensks samtíma og að reimleikum í eigin ranni. Hér togast á leiftrandi húmor og djúp alvara í hörkuspennandi sögu um lífsháskann í mannlegum samskiptum.
Ganga draugar ljósum logum á björtum sumarnóttum um gamalt, yfirgefið hús á Akureyri? Þar er eitthvað á seyði og í gúrkutíð er allt hey í harðindum fyrir Einar blaðamann á Síðdegisblaðinu. Sumarhátíðin „Allt í einni“ er að hefjast um verslunarmannahelgina og þúsundir gesta streyma til höfuðstaðar Norðurlands til að skemmta sér. Um leið kvisast út að stjörnur frá Hollywood séu komnar í bæinn fyrir tökur á erótískri spennumynd. Þá er gúrkutíðin úti.
Áður en Einar og Ólafur Gísli Kristjánsson yfirlögregluþjónn vita af hrannast verkefnin upp. Hver er unga stúlkan sem finnst myrt í gamla húsinu? Hver er dularfulla konan í símanum sem kveðst vera skyggn? Hvað er veruleikinn og hvað er sjónarspil?
ATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókin er til á geisladiski (CD eða Mp3) sem afhendist í pósti eða úr verslun en einnig er hægt að fá hljóðbók sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra (Hljóðbók – App). Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er um 9 klukkustundir að lengd. Hjálmar Hjálmarsson les.
5 umsagnir um Dauði trúðsins
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Skemmtilegur krimmi sem aðdáendur sakamálasagna ættu alls ekki að láta fram hjá sér fara.“
Bjarni Thor Kristinsson / DV
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Sennilega besta saga Árna til þessa … margslungin, vönduð og trúverðug flétta … stórskemmtileg bók.“
Sigurður G. Tómasson / Útvarp Saga
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Gamlir taktar úr fyrri bókum um Einar ylja dyggum lesendum um hjartarætur … lipurlega skrifaður krimmi … boðskapurinn er skýr og þarfur.“
Steinunn Inga Óttarsdóttir / Morgunblaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… mjög góður og flottur krimmi … skemmtilegar pælingar … og ráðgátan sjálf er spennandi og trúverðug.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Mjög skemmtileg persóna … kaldhæðinn, gagnrýninn á lífið og tilveruna … ólíkur hefðbundnum lögreglumönnum … mæli hiklaust með henni … heldur manni vel við efnið.“
Katrín Jakobsdóttir / Mannamál / Stöð 2