Örlagadansinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1993 | 168 | 590 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1993 | 168 | 590 kr. |
Um bókina
Í þessari magnþrungnu spennusögu, sem gerist í Reykjavík, fáum við að kynnast íslensku glæpafélagi, sem lögreglan stendur ráðþrota yfir. Eiturlyf streyma til landsins, og morð eru framin án þess að hægt sé að rekja eitt eða neitt.
"Örninn" forsprakkinn, er harðsvíraður náungi sem vílar ekkert fyrir sér. Hann er útsmoginn og tekst að villa á sér heimildir.
Við kynnumst einnig Hörpu, ungu stúlkunni, sem á ógnvekjandi hátt blandast inn í mál "Arnarins" þegar fósturfaðir hennar er myrtur. Hún ásamt lögreglumanninum, Ágústi, er allt í einu orðin skotmark glæpamanna, sem aldrei gefast upp fyrr en verki þeirra er lokið.
Leikurinn berst frá Reykjavík norður í Skagafjörð, til Drangeyjar þar sem örlagadansinn er stiginn. Þetta er hörkuspennandi saga og endalokin koma mjög á óvart.