Smásögur – með nútímastafsetningu
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 990 kr. |
Um bókina
Smásögur Halldórs Laxness hafa að geyma sumt af því besta sem hann sendi frá sér á löngum ferli. Hér eru öll fjögur smásagnasöfn hans í einni bók: Nokkrar sögur frá 1923, Fótatak manna frá 1933, Sjö töframenn sem gefin var út 1942 og Sjöstafakverið frá 1964; alls 34 sögur sem hann samdi á löngu árabili, þá elstu aðeins sautján ára en yngstu sögurnar birtust þegar skáldið var komið á sjötugsaldur. Sögurnar eru fjölbreyttar að efni og stíl en bera allar skýr einkenni höfundarins og vitna um hugðarefni hans, skoðanir og málsnilld. Í þeim má sjá hugmyndir og efnisþætti sem fólk þekkir úr viðameiri verkum hans en um leið eru smásögurnar sjálfstæð skáldverk og bera vott um djúpan mannskilning og einstaka stílgáfu Nóbelsskáldsins.
Þessi útgáfa sagnanna er með nútímastafsetningu.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar