Fyrir sunnan

Útgefandi: Forlagið
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2022 - 990 kr.
spinner
Kilja 2015 383 2.290 kr.
spinner

Fyrir sunnan

Útgefandi : Forlagið

990 kr.2.290 kr.

Fyrir sunnan
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2022 - 990 kr.
spinner
Kilja 2015 383 2.290 kr.
spinner

Um bókina

Æviminningar Tryggva Emilssonar verkamanns vöktu mikla athygli þegar þær komu út á árunum 1976–1979, enda þóttu þær einstakur aldarspegill og mögnuð lýsing á breytingunum frá gamla bændasamfélaginu til nútímans. Fyrri bækurnar tvær, Fátækt fólk og Baráttan um brauðið, voru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Tryggvi fluttist til Reykjavíkur árið 1947 og vettvangur þessa lokabindis er því verkalýðs- og stjórnmálaátök syðra, þar sem Tryggvi var í fylkingarbrjósti, og hörð lífsbarátta í braggahverfum og úthverfum Reykjavíkur á eftirstríðsárunum. Hann lýsir mörgum samstarfs- og samferðamönnum af einlægri hlýju og djúpri samkennd, þótt oft skíni í glettni.

Í bókarauka er greint frá lífshlaupi systkina Tryggva, sem áttu sér ekki síður viðburðaríka baráttusögu en bróðirinn.

„… merkilegt hetjuljóð um … gildi baráttunnar fyrir betra og fegurra mannlífi, þeirrar baráttu sem aldrei má linna.“
Heimir Pálsson / Helgarpósturinn

„Óhætt er að fullyrða að æviminningar Tryggva Emilssonar séu með markverðustu ævisögum sem gefnar hafa verið út á þessari öld. Þær eru aldafarsspegill, ritaðar af alúð og oft og tíðum sjaldgæfri frásagnargáfu og ritsnilld.“
Gísli Ágúst Gunnlaugsson / Saga

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning