Brotin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2022 | 327 | 3.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 3.990 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 3.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2022 | 327 | 3.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 3.990 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 3.690 kr. |
Um bókina
Brotin er harðsoðin og hörkuspennandi glæpasaga úr Reykjavík samtímans eftir margverðlaunaðan handritshöfund og leikskáld. Magnað ferðalag með ógleymanlegum persónum, kryddað bleksvörtum húmor.
Unglingsstúlka hverfur í skólaferðalagi á Þingvöllum. Þar sem allt tiltækt lögreglulið er upptekið við rassíu í undirheimum kemur það í hlut lögreglukonunnar Dóru, sem glímir við heilaskaða eftir voðaskot, að rannsaka málið. Sér til aðstoðar fær hún Rado, son serbneskra flóttamanna sem hefur unnið sig upp í lögreglunni en er fallinn í ónáð vegna fjölskyldutengsla við pólskt glæpagengi.
Ráðgátan um hvarf unglingsins nær smám saman heljartökum á utangarðslöggunum tveimur. Rado og Dóra reynast fantasterkt tvíeyki: hann drifinn áfram af brennandi réttlætiskennd, hún með allt að því yfirskilvitlegt innsæi og bæði eru þau þrjóskari en andskotinn – en hausinn á Dóru er óútreiknanlegur og á það til að bila á ögurstundum.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 32 mínútur að lengd. Höfundur les.
Hér má hlusta á brot úr hljóðbókinni:
5 umsagnir um Brotin
embla –
„Vel heppnuð glæpasaga, áhugaverð persónusköpun og flétta sem gengur vel upp.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið
embla –
„Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að Brotin eftir Jón Atla Jónasson sé besta íslenska sakamálasaga þessa árs og já ein sú besta sem ég hef lesið lengi.“
Steingerður Steinarsdóttir
embla –
„Nútímaleg og grípandi glæpasaga sem rígheldur frá fyrstu blaðsíðu.“
Ómar Úlfur Eyþórsson
embla –
„Trúverðug bók og lýsingarnar svo góðar að maður finnur lyktina í öllum rímum og marinerar sig í óþægilegu andrúmsloftinu, ómögulegt að leggja hana frá sér. Á sama tíma og maður óttaðist hvað í myndi gerast á næstu síðu þá kveið maður því mest að klára bókina, vildi einfaldlega meira.“
Andri Freyr Viðarsson
embla –
„… bókin er raunverulega fyndin, sem er ekki algengt í íslenskum glæpasögum, og þar að auki mjög spennandi.“
Arnór Hjartarson / Stundin