Spádómur fúleggsins
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2022 | 70 | 4.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2022 | 70 | 4.690 kr. |
Um bókina
Spádómur fúleggsins fjallar um að það að nema drauma, að nema tíma fugla, fiska og manna, að nema það sem kemur og hverfur. Spádómur fúleggsins er fyrsta ljóðabókin sem Birtu gefur út ein undir eigin nafni en hún hefur áður birt endurljóðblöndun á Aldnir hafa orðið í bókinni Tímaskekkjur sem nemendur í ritlist og ritstjórn við Háskóla Íslands gáfu út árið 2016, auk þess sem hún hefur gefið út tvo ljóðableðla (2006 og 2010) ásamt Ástríði Tómasdóttur.
Birta Ósmann Þórhallsdóttir er fædd árið 1989. Hún nam ritlist við Háskóla Íslands og myndlist við Listaháskóla Íslands og Escuela Nacional de pintura, Escultura y Grabado „La Esmeralda“ í Mexíkóborg. Hún hefur áður gefið út örsagnasafnið Einsamræður (Skriða, 2019) og þýðingu úr spænsku á Snyrtistofunni eftir Mario Bellatin (Skriða, 2021). Hún hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta árið 2016.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar