Smárit Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur – 2021
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Pakkar | 2021 | 286 | 5.090 kr. |
Smárit Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur – 2021
5.090 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Pakkar | 2021 | 286 | 5.090 kr. |
Um bókina
Smárit Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum er ný ritröð stofnunarinnar sem gefin er út af Háskólaútgáfunni. Hér er á ferðinni röð sem ætlað er að miðla alls kyns fróðleik um ólíka menningarheima og hugsun.
Í fyrstu þremur smáritunum er að finna þýddar ritgerðir eftir þrjá höfunda:
Fyrsta ritið er eftir Kínafræðinginn Simon Leys og nefnist Úr Gagnleysisskálanum – Esseyjur um Kína í þýðingu Geirs Sigurðssonar.
Annað ritið er eftir danska heimspekinginn og guðfræðinginn Dorthe Jørgensen og nefnist Hvers vegna hræðumst við ímyndunaraflið? – Af siðaskiptum og fagurfræði, í þýðingu Gísla Magnússonar.
Þriðja ritið er eftir fransk-marokkóska rithöfundinn og blaðakonuna Leïla Slimani og kallast Kynlíf, nauðung og lygar í Marokkó, í þýðingu Irmu Erlingsdóttur.
Smáritin eru gefin út af Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og Háskólaútgáfunni og styrkt af Miðstöð íslenskra bókmennta, Danska listasjóðnum og Styrktarsjóði Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Valgerður Jónasdóttir sá um kápuhönnun.
Ritstjórar: Ásdís Rósa Magnúsdóttir og Kristín Guðrún Jónsdóttir.