Ilmreyr
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Innbundin | 2021 | 278 | 3.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 3.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Innbundin | 2021 | 278 | 3.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 3.990 kr. |
Um bókina
Ilmreyr er kveðja frá dóttur til móður en um leið óður til formæðra og -feðra sem háðu sitt lífsstríð við úthafsölduna vestur á fjörðum og áttu líka glímutök við brimöldur hjartans – þær sömu og fylgt hafa mannkyninu frá upphafi vega og gera enn.
Í bókinni vefast sjálfsævisöguleg efnistök saman við sagnfræði, þjóðfræði, skáldskap og skemmtun. Hér segir frá samskiptum og samspili kynja og kynslóða, ástum, bernskubrekum, hversdagslífi, ævintýrum og mögnuðum örlögum.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir lærði íslensku, þjóðfræði og heimspeki við Háskóla Íslands og lauk þaðan doktorsprófi árið 2000. Ilmreyr er áttunda bók hennar en bókin Lífsgrös og leyndir dómar var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2019.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 43 mínútur að lengd. Höfundur les.
Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:
4 umsagnir um Ilmreyr
embla –
„Þetta er einstaklega fallega skrifuð bók og margar hörmungar- og gleðisögur frá a.m.k. tveggja alda tíma blasa við. Ólína hefur traustatök á íslensku máli, skrifar bæði lipran, blæbrigðaríkan og fjörugan stíl, oft með tilþrifum, margt er hér glæsilega orðað.“
Sölvi Sveinsson / Morgunblaðið
embla –
„Áhrifarík og heillandi bók.“
Steingerður Steinarsdóttir / Vikan
embla –
„Ég las hana upp til agna … gullfallegur aldarspegill, heitfeng ættarsaga og almennilega skrifuð íslenska.“
Sigmundur Ernir Rúnarsson
embla –
„Fróðleg og heillandi saga, skrifuð af næmni og hispursleysi.“
Elín Hirst / Fréttablaðið