12 konur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók | 2021 | App | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók | 2021 | App | 990 kr. |
Um bókina
Fáir íslenskir höfundar hafa náð jafn góðum tökum á knöppu listformi smásögunnar og Svava Jakobsdóttir (1930-2004). 12 konur sem kom út 1965 var hennar fyrsta bók og þar kveður við nýjan tón í íslenskri smásagnagerð. Í sögunum dregur Svava upp öflugar lýsingar á íslenskum veruleika og margbrotnum reynsluheimi persónanna þar sem furðuleiki og blákaldur raunveruleiki fléttast saman og sjaldan er allt sem sýnist.
Svava Jakobsdóttir var einn þekktasti og áhrifamesti rithöfundur okkar á síðari hluta 20. aldar og brautryðjandi í íslenskum nútímaskálskap. Auk smásagnanna skrifaði hún tvær skáldsögur og nokkur leikrit og lét til sín taka á sviði menningar- og stjórnmála. Verk hennar hafa verið þýdd á mörg tungumál og hún hlaut fyrir þau ýmsar viðurkenningar, hérlendis og erlendis.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 2 klukkustundir og 9 mínútur að lengd. Ragnheiður Steindórsdóttir les.