Þegar Kjósin ómaði af söng
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 243 | 5.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 243 | 5.690 kr. |
Um bókina
Sönglíf, þjóðlíf og mannlíf er viðfangsefni bókarinnar Þegar Kjósin ómaði af söng. Höfundar bókarinnar eru Bjarki Bjarnason og Ágústa Oddsdóttir . Í bókinni er fjallað um söngmenningu í Kjósarhreppi sem stóð með miklum blóma um langt skeið á liðinni öld og teygði anga sína út á Kjalarnes og suður í Mosfellssveit. Þetta öfluga söngstarf var undir forystu og stjórn Odds Andréssonar bónda að Neðra-Hálsi. Oddur stofnaði söngkvartett um 1930 og upp úr þeim kvartettsöng skaut Karlakór Kjósverja sínum fyrstu rótum. Síðar stjórnaði Oddur fleiri kórum.
Ágústa hefur frá árinu 1981 safnað upplýsingum um söngstarf og mannlíf í Kjós frá fyrri tíð og haldið til haga munnlegum frásögnum og er það grunnefni þessarar bókar. Það var svo árið 2018 að Ágústa fékk Bjarka Bjarnason til liðs við verkefnið og saman unnu þau verkið til loka. Mikið myndefni er í bókinni og henni fylgir geisladiskur með upptökum frá Ríkisútvarpinu af söng Karlakórs Kjósverja frá árinu 1953 og Karlakórs Kjósarsýslu frá árinu 1962.