Bál tímans
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 121 | 4.090 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 121 | 4.090 kr. |
Um bókina
Æsispennandi tímaflakk í fylgd gamallar skinnbókar.
Ofan í læstri hvelfingu í Reykjavík eru varðveitt skinnhandrit sem voru skrifuð á Íslandi fyrir mörg hundruð árum. Þessar bækur, sem geyma fornar sögur, kvæði, galdra, lög og fróðleik, eru ráðgáta. Enginn veit hver skrifaði þær eða hvenær, hver átti þær og hvað hefur glatast úr þeim. Eitt þessara handrita er Möðruvallabók sem stígur hér fram og segir sögu sína. Með henni mátti kaupa bæði líf og mannorð, hún lenti í svaðilförum á landi og sjó, varð fyrir slysum og skemmdarverkum og slapp oft naumlega frá því að lenda á báli tímans.
Bál tímans kemur út þegar hálf öld er liðin síðan fyrstu miðaldahandritunum var skilað til Íslands eftir aldalanga dvöl í Danmörku. Arndís Þórarinsdóttir skrifar sögu Möðruvallabókar út frá öllum tiltækum heimildum en líka ríkulegu ímyndunarafli þannig að atburðirnir lifna við í textanum, sem og í fjörugum myndum Sigmundar B. Þorgeirssonar.
3 umsagnir um Bál tímans
embla –
„Óvæntur sögumaður tekur lesanda með í fróðlegt ferðalag. Myndir gæða bókina miklu lífi og auka lestraránægjuna. Bókin segir frá helsta fjársjóði íslenskra bókmennta á nýstárlegan hátt og kynnir handritin fyrir ungum lesendum.“
Umsögn dómnefndar Íslensku bókmenntaverðlaunanna
embla –
„Bál tímans er skemmtileg lesning hvort sem það er fyrir börn eða fullorðna, hún er tilvalin fjölskyldubók, sem vekur upp skemmtilegar samræður um fortíðina, sögu Íslands, handritin og öruggustu hvelfingu Íslands í Árnagarði.“
Katrín Lilja / Lestrarklefinn
embla –
„Það væri rosalega gaman að lesa þessa bók með börnum.“
Sunna Dís / Kiljan