Norræn sakamál 2006

Útgefandi: Lindhard
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.990 kr.
spinner

Norræn sakamál 2006

Útgefandi : Lindhard

1.990 kr.

Norræn sakamál 2006
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2021 App 1.990 kr.
spinner

Um bókina

Hér kemur fyrir sjónir lesenda sjötti árgangur og þar með sjötta bókin með norrænum sakamálum.

Í þessari bók eru fimm íslenskar frásagnir sem ég held að séu áhugaverðar og þess virði að gefa sér tíma til að lesa þær. Þessar frásagnir eru ólíkar bæði í efni og framsetningu. Hér er frásögn af stóru fíkniefnamáli, sem ekki er aðeins sérstakt vegna þess mikla magns af fíkniefnum sem er fjallað um að hafi verið flutt inn til Íslands, heldur einnig af því að þetta mál var árangur af sérstöku samstarfi íslenskra og þýskra lögregluyfirvalda sem bar svo góðan árangur. Þá er frásögn af manndrápsmáli og rannsókn þess lýst af tæknideildarmönnum í Reykjavík sem segja frá því hvernig sannleikurinn birtist þeim í blóðinu á vettvangi.

Í þessari bók eru einnig frásagnir af tveimur öðrum manndrápsmálum sem hvort um sig er sérstakt, bæði vegna þess hvernig verknaðirnir eru framdir og einnig vegna þeirra aðila sem málin fjalla um. Annað þeirra lýsir því hvernig trúarbrögð og siðir, sem okkur eru fjarlæg, geta haft ótrúlega mikil áhrif á líf nútímafólks á Íslandi. Síðast en alls ekki síst er frásögn af máli um umhverfisbrot, en það varð fyrsta málið á sínu sviði, sem endaði með áfellisdómi. Þetta er skemmtileg og hlýleg frásögn sem mun falla öllum unnendum íslenskra náttúru vel í geð.

Það er ekki síður áhugavert að lesa frásagnirnar frá hinum Norðurlöndunum. Þær fjalla um margvísleg efni og engin þeirra er annarri lík. Margar þeirra eru svo sérstakar að lesandinn hlýtur að hugsa með sér hvernig þetta geti eiginlega gerst. Það er líka mjög athyglisvert og fróðlegt að lesa um erfiðleika lögreglumannanna og þrautseigju þeirra við að leysa þessi mál þótt það hafi í sumum tilfellum tekið fleiri ár.

Ég er viss um að lesendur hafa ánægju af að kynnast þessum málum og þeir verða einnig á margan hátt fróðari eftir lestur þeirra.
Njótið vel!

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er um 10 klukkustundir að lengd. Hjálmar Hjálmarsson les.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning