Íslensk togaraútgerð 1945-1970

Útgefandi: Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 1991 272 1.690 kr.
spinner

Íslensk togaraútgerð 1945-1970

Útgefandi : Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands

1.690 kr.

Íslensk togaraútgerð 1945-1970
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 1991 272 1.690 kr.
spinner

Um bókina

Haustið 1944 tóku höndum saman höfuðandstæðingar íslenskra stjórnmála, Sjálfstæðisflokkurinn og Sosíalistaflokkurinn, og mynduðu ásamt Alþýðuflokknum nýsköpunarstjórnina. Þegar í upphafi ákvað stjórnin að verja stórum hluta stríðsgróðans til þess að endurnýja úr sér genginn togaraflota Íslendinga. Á skömmum tíma samdi hún um smíði og kaup á fjölda svonefndra nýsköpunartogara og lagði þar með grunninn að togaraútgerð næstu áratuga. Sú ríkisstjórn, sem tók við stjórnartaumunum árið 1947, hélt uppteknum hætti en komst þó ekki í hálfkvisti við nýsköpunarstjórnina.

Í þessari bók rekur Þorleifur Óskarsson sagnfræðingur sögu togaraútgerðarinnar 1945–1970. Hann ræðir um uppbyggingu flotans og rekstur togaranna, deilur um togarakaup og togaraútgerð, gjörbreytt rekstrarform og forsendur þess. Ræddir eru kostir og gallar einkaframtaks og opinberra umsvifa við uppbyggingu flotans og rekstur skipanna, en nýsköpunartogararnir voru flestir í eigu sveitarfélaga vítt og breitt um landið.

Bókin er gefin út í ritröðinni Sagnfræðirannsóknir sem Sagnfræðistofn Háskóla Íslands gefur út.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning