Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Lágkolvetna lífstíllinn
Útgefandi: BF
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2013 | - | 3.790 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2013 | - | 3.790 kr. |
Um bókina
Margar nýlegar rannsóknir sýna og sanna að mataræði sem byggir á lágu kolvetna innihaldi og hærra hlutfalli fitu skilar fólki mestum árangri við þyngdarstjórnun, að öðlast heilbrigðari lífsstíl og betri heilsu. Fólk um víða veröld er að tileinka sér lág kolvetna mataræði.
Fyrir 30 árum hófst barátta gegn fituríkum mat og markaðssetning og sala fitusnauðrar fæðu hóf innreið sína. En síðan hefur offita aukist í heiminum og verður sífellt meira heilbrigðisvandamál. Getur verið að skilaboðin hafi verið röng? Er fitan nýi vinur þinn?
Gunnar Már Sigfússon hefur um langt árabil verið einn vinsælasti líkamsræktarþjálfari og heilsuráðgjafi landsins. Í þessari bók leiðir hann lesendur í allan sannleika um þennan jákvæða lífsstíl og gefur fjölda uppskrifta að girnilegum réttum sem auðvelda þér leiðina að heilbrigðara lífi.
Lágkolvetnalífstíllinn er tilnefnd til alþjóðlegu Gourmand verðlaunanna í flokkunum „Best Health and Nutrition Book“ og „Best Cookbook Photography“.