Yfir höfin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2020 | 1.990 kr. | |||
Kilja | 2020 | 367 | 3.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2020 | 1.990 kr. | |||
Kilja | 2020 | 367 | 3.490 kr. |
Um bókina
Þegar fasistar ná völdum á Spáni í lok borgarastyrjaldarinnar árið 1939 neyðast þúsundir til að flýja eftir háskalegum leiðum til Frakklands. Meðal þeirra eru ungi herlæknirinn Váctor og Roser, barnshafandi ekkja bróður hans. Til þess að komast af neyðast þau til að ganga í hjónaband sem hvorugt þeirra óskar sér.
Örlögin leiða þau til Chile með skipi sem skáldið Pablo Neruda hefur leigt til bjargar flóttafólki og saman tekst þessum útlögum að skjóta rótum í framandi meginlandi á meðan styrjöld geisar í Evrópu. En blikur eru einnig á lofti í afturhaldssömu og stéttskiptu samfélaginu í Chile.
Yfir höfin er söguleg skáldsaga sem spannar nokkrar kynslóðir og tvö meginlönd. Þetta er saga um ástir, fjölskyldur, stríð og leitina að samastað í viðsjálli veröld.
Isabel Allende er fyrir löngu orðin einn ástsælasti rithöfundur heims, enda er hún einstök sagnakona. Aðdáendur hennar munu ekki verða sviknir af þessari margbrotnu frásögn sem streymir fram eins og litríkt og ólgandi stórfljót.
Sigrún Á. Eiríksdóttir þýddi.
3 umsagnir um Yfir höfin
embla –
„Yfir höfin býður lesendum í kærkomið ferðalag bæði í gegnum söguna og til tveggja heimsálfa. Þetta er aðgengileg bók en þó með mjög fræðandi innihaldi og sögulegu ívafi.“
Sæunn Gísladóttir / Lestrarklefinn
Elín Pálsdóttir –
„Ögrandi, hlýleg og fyndin saga eftir höfund sem þekkir af eigin raun að ástin og bjartsýnin geta lifað af allt sem sagan færir okkur í fangið.“
Daily Telegraph
Elín Pálsdóttir –
„… eitt magnþrungnasta og hjartnæmasta verkið á löngum ferli Isabel Allende.“
New York Times Book Review