Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Fyrir daga farsímans
Útgefandi: Sæmundur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 194 | 3.090 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 194 | 3.090 kr. |
Um bókina
Smásögur 2020.
Furðulegir helgidómar á altari kirkju sem var vígð 1882. Leiðsögumaður þýskra túrista sem þarf að þola að þeir hegða sér allt öðruvísi en honum líkar. Hernaðarsaga Íslendinga, ástir í braggahverfi og söngnám á Ítalíu. Þetta og margt fleira er efni nýrra smásagna Böðvars Guðmundssonar. Sögurnar eiga það sameiginlegt að þær gerast fyrir daga farsímans.
Böðvar Guðmundsson þarf vart að kynna en hann hefur verið ástsælt skáld um áraraðir og meðal annars hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin. Hér opnar hann nokkra glugga inn í gamlan heim, þar sem líf og reynsla karlmanna er í fyrirrúmi. Langanir þeirra, hugsanir og þrár sem þeir hafa ef til vill aldrei látið í ljósi.