Tregasteinn: Konráð #3
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 306 | 3.390 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Kilja | 2020 | 306 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2019 | App | 3.990 kr. |
Tregasteinn: Konráð #3
990 kr. – 3.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 306 | 3.390 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Kilja | 2020 | 306 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2019 | App | 3.990 kr. |
Um bókina
Kona er myrt á heimili sínu og á skrifborði í íbúðinni finnst miði með símanúmeri Konráðs, fyrrverandi lögreglumanns.
Þegar málið er kannað kemur í ljós að nokkru áður hafði konan sett sig í samband við hann og beðið hann að finna fyrir sig barnið sem hún fæddi fyrir næstum hálfri öld og lét strax frá sér. Nú er Konráð miður sín yfir að hafa neitað bón hennar og einsetur sér að bæta fyrir það.
Tregasteinn er áhrifamikil og óvægin saga um skömm og örvæntingu, ákafa eftirsjá og langvarandi bergmál illra verka.
Arnaldur Indriðason hefur lengi verið helsti glæpasagnahöfundur landsins og skáldsögur hans eru orðnar tuttugu og þrjár talsins. Þær hafa verið þýddar á um fjörutíu tungumál og selst í yfir fjórtán milljónum eintaka. Arnaldur hefur hlotið fjöldamörg verðlaun og viðurkenningar fyrir bækur sínar sem njóta gríðarlegra vinsælda heima og heiman.
ATH. Rafbækur á vef Forlagsins eru af ePUB-gerð sem flestir lesarar og snjalltæki styðja. Fyrir Kindle-lestölvur er hægt að kaupa rafbækur í gegnum vefverslun Amazon, allar rafbækur Forlagsins eru einnig aðgengilegar þar.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er átta klukkustundir og tuttugu mínútur að lengd. Stefán Hallur Stefánsson les.
Hér má hlusta á fyrsta kafla hljóðbókarinnar:
6 umsagnir um Tregasteinn: Konráð #3
gudnord –
„Skorar mörg stig fyrir þessa bók … ég var mjög ánægð með hana, skemmtileg bók og spennandi.“
Guðrún Baldvinsdóttir / Kiljan
Arnar –
„Það er ekki oft sem lesandi leggur frá sér glæpasögu og þarf að taka sér tíma til að jafna sig eftir lesturinn … einstaklega vel gerð og minnisstæð glæpasaga um óblíð örlög.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Fréttablaðið
Elín Pálsdóttir –
„Tregasteinn er snilld … enn eitt meistarastykki Arnaldar.“
SG / Morgunblaðið
Elín Pálsdóttir –
„… traustur vitnisburður um að Arnaldur verður bara betri og betri.“
ÞÞ / Fréttablaðið (Um Stúlkan hjá brúnni)
Elín Pálsdóttir –
„… óviðjafnanleg snilld.“
Le Devoir (Um Myrkrið veit)
Elín Pálsdóttir –
„… stórmeistari norrænu glæpasögunnar …“
Libération