Skáldið er eitt skrípatól: um ævi og skáldskap Fernando Pessoa
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 278 | 5.090 kr. |
Skáldið er eitt skrípatól: um ævi og skáldskap Fernando Pessoa
5.090 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 278 | 5.090 kr. |
Um bókina
Hann liðaðist sundur við yrkingar en rann um leið saman við hið þekkta og óþekkta í tilverunni. Mikið skáld yrkir ofar sjálfu sér og lyftist þannig upp á æðri svið…
Portúgalski rithöfundurinn Fernando Pessoa (1888–1935) er einn máttarstólpa í menningarumræðu á tuttugustu öld. Hann var ljóðskáld, gagnrýnandi, heimspekingur og þýðandi en lengi framan af vissu menn ekki hvernig taka átti orðum hans, hver mælti hverju sinni, því hann skrifaði ekki alltaf undir eigin nafni. Hann skapaði í huga sér ótal ólík skáld og orti fyrir munn þeirra, þau helstu voru Alberto Caeiro, Alvaro de Campos og Ricardo Reis. Guðbergur Bergsson þýðir af stakri snilld meginhluta kvæðasafns Pessoa – greinir frá uppvexti hans og helstu áhrifavöldum og skýrir að auki þann bakgrunn sem mótaði skáldið.
Guðbergur Bergsson hefur þýtt mörg helstu meistaraverk samtímans. Hann hefur sent frá sér skáldsögur, ljóð, barnabækur, skáldævisögur og haft ómæld áhrif á bókmenntir okkar tíma. Hann hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ritstörf sín, m.a. Íslensku bókmenntaverðlaunin tvívegis.