Blesa og leitin að grænna grasi
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 44 | 2.590 kr. |
Blesa og leitin að grænna grasi
2.590 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 44 | 2.590 kr. |
Um bókina
Blesa er íslenskur hestur í venjulegum íslenskum haga sem vorkennir sjálfri sér agalega mikið. Hún er komin með upp í kok af að éta sama gula heyið alla daga og henni leiðist ógurlega mikið. Blesa er algjörlega sannfærð um að grænna gras sé að finna annars staðar.
Týri, vinur hennar, er orðinn þreyttur á að hlusta á volið í Blesu. Hann tekur til sinna ráða og rekur hana af stað í leiðangur. Blesa ferðast um allt land og kynnist alls konar dýrum og heimsækur spennandi staði. En eftir því sem líður á ferðalagið fer hún að velta fyrir sér hvort hún sé mögulega að leita langt yfir skammt. Kannski var heyið ekki svo slæmt í haganum heima þrátt fyrir allt?
Blesa og leitin að grænna grasi er fyndin og skemmtileg saga sem kynnir unga lesendur fyrir íslenskri náttúru og dýraríki hennar ásamt því að velta upp spurningunni hvort grasið sé alltaf grænna hinum megin.