Hnífur: Harry Hole #12
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 570 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2019 | App | 2.990 kr. |
Hnífur: Harry Hole #12
990 kr. – 3.490 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 570 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2019 | App | 2.990 kr. |
Um bókina
Harry Hole er ekki á góðum stað í lífinu. Rakel, ástin hans eina, sagði honum upp. Hann fékk nýtt tækifæri hjá ofbeldisglæpadeild Oslóarlögreglunnar en er einungis látinn sinna smámálum – og alls engu sem tengist raðnauðgaranum og morðingjanum Svein Finne, sem hefur nú verið sleppt úr fangelsi eftir að hafa setið þar árum saman fyrir hrottalega glæpi.
Harry er sannfærður um að Finne taki fljótt upp fyrri siði. Og vei þeim sem verður á vegi hans. Einn morguninn vaknar Harry svo óvenjusjúskaður, jafnvel á hans mælikvarða, og blóðugur á höndunum. En blóðið er ekki úr honum. Þar með hefst martröð sem Harry hefði ekki óskað sínum versta óvini.
Enginn stenst spennusagnameistaranum Jo Nesbø snúning þegar kemur að þéttum fléttum, uppfinningasömum glæpamönnum og lýsingum á takmarkalausri mannvonsku. Hnífur er tólfta sagan um Harry Hole.
Bjarni Gunnarsson þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 18 klukkustundir og 52 mínútur að lengd. Hjálmar Hjálmarsson les.
Hér má hlusta á brot úr fyrsta kafla hljóðbókarinnar:
2 umsagnir um Hnífur: Harry Hole #12
Elín Pálsdóttir –
„Nesbø virðist hafa unun af óhugnanlegum glæpamönnum og morðingjarnir eru yfirleitt þeir sem virðast ólíklegastir. Bækurnar hans eru einfaldlega ávanabindandi.“
Vanity Fair
Elín Pálsdóttir –
„Hnífur er án efa besta bókin í seríunni um Harry Hole . . . óbærilega spennandi. Þetta er löng bók sem maður vill ekki að sé svo mikið sem einni síðu styttri.“
The Wall Street Journal