Fíasól gefst aldrei upp
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 208 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.990 kr. |
Fíasól gefst aldrei upp
990 kr. – 4.290 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 208 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.990 kr. |
Um bókina
Nú snýr Fíasól aftur, tíu ára og kraftmeiri en nokkru sinni fyrr. Hún stofnar björgunarsveit sem berst fyrir réttindum barna, glímir við tuddana í bekknum og spilar stuðbolta.
„Fyrir hvaða aldur er þessi bók?“ spyr amma í bókabúð.
„Sjáðu til, amma,“ svarar Fíasól. „Þessi bók er fyrir alla sem hafa áhuga á börnum. Hún er fyrir barnalega fullorðna og fullorðinsleg börn. Hún er um sterka stráka og kraftastelpur.“
„Já, er þessi bók þá fyrir stelpur?“ spyr amman og skoðar stelpuna framan á kápunni.
„Nei, nei, alls ekki!“ svarar Fíasól. „Þetta er bók fyrir alla krakka af því að strákar og stelpur eiga heiminn saman.“
Kristín Helga Gunnarsdóttir er margverðlaunaður fjölskyldubókahöfundur og Fíusólarbækurnar hafa þrívegis hlotið Bókaverðlaun barnanna. Halldór Baldursson er sérfræðingur í því að teikna Fíusól, vini hennar og vandamenn. Enginn annar í heiminum getur það jafn vel og hann.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er um 3 klukkustundir að lengd. Höfundur les.
Hér má hlusta á hljóðbrot úr fyrsta kafla streymishljóðbókarinnar:
1 umsögn um Fíasól gefst aldrei upp
Arnar Tómas –
„Kristín Helga gefur ekkert eftir í nýjustu bókinni um Fíusól, eftir áralangt hlé frá skrifum um þessa framhleypnu stúlku, og það væri óskandi að íslensk börn fengju að lesa meira um Fíusól í nánustu framtíð.“
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir / Morgunblaðið