Sverðberinn

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2004 1.190 kr.
spinner

Sverðberinn

Útgefandi : MM

1.190 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2004 1.190 kr.
spinner

Um bókina

Kvöldið sem slysið varð, kvöldið sem þau gerðu hlé á spilamennskunni til að sækja Veru í vinnuna, var Signý loksins búin að finna nafn á persónuna sína. Leda skyldi hún heita. Eftir slysið vaknar Leda – sverðberinn – í ókunnum heimi þar sem hún á fyrir höndum erfitt og hættulegt verkefni. Á meðan sefur Signý þungum svefni á spítalanum og enginn veit hvort hún vaknar nokkurn tíma aftur.

Ragnheiður Gestsdóttir er þekkt fyrir vandaðar og vinsælar barna- og unglingabækur sem hlotið hafa margs konar verðlaun. Sverðberinn er spennandi fantasíusaga þar sem ævintýrið og raunveruleikinn fléttast saman á margslunginn hátt, saga sem enginn leggur frá sér fyrr en að lestri loknum.

Kennsluleiðbeiningar með  Leikur á borði og tveimur öðrum bókum Ragnheiðar,  40 vikum og Sverðberanum, má fá .

Tengdar bækur