Sagan af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum

Útgefandi: Sæmundur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2010 325 2.190 kr.
spinner

Sagan af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum

Útgefandi : Sæmundur

2.190 kr.

Sagan af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2010 325 2.190 kr.
spinner

Um bókina

Þuríður Einarsdóttir (oftast nefnd Þuríður formaður) (1777 – 13. nóvember 1863) var einn mesti kvenskörungur í Árnesþingi á 19. öld og þekktust fyrir formennsku sína á sjó og því að koma upp um Kambsránið. Hún stundaði sjó til ársins 1843 og var lengst af formaður á bát en það þótti einstakt fyrir konur á hennar tíma.

Þuríður formaður var fædd á Stéttum í Hraunshverfi, en þar bjuggu foreldrar hennar í mörg ár, og þar ólst hún upp til 25 ára aldurs. Móðir Þuríðar var Helga yngri Bjarnadóttir í Ranakoti efra Þorsteinssonar, er bjó í Sandlækjarkoti árið 1703, Jónssonar. Ævi Þuríðar formanns er stundum skipt í þrjú tímabil að mestu eftir dvalarstöðum hennar.

Fyrsta tímabilið, þar til hún er 25 ára gömul, átti hún heima á Stéttum hjá foreldrum sínum. Hún byrjaði að róa á vorvertíð hjá föður sinum 11 ára gömul og er síðan látin róa vor og haust sjá föður sínum og Bjarna bróður sínum, þar til hún gerist fullgildur háseti á vetrarvertíð hjá Jóni í Móhúsum, þá rúmlega tvítug að aldri. Á þessum árum klæddist hún karlmannsfötum vegna sjómennskunnar en til þess þurfti sérstakt leyfi sýslumanns.

Annað tímabilid nær frá 1802—1830. Þá á hún heima á ýmsum stöðum í Stokkseyrarhverfinu, lengst í einum stað í Götu. Á þeim árum stendur hún upp á sítt besta. Þá byrjar hún formennsku fyrst á vor- og haustvertíð, síðan á vetrarvertiðum sem formaður á Stokkseyri frá 1816—30.

Þriðja tímabilið nær frá 1830 til dauðadags Þuríðar. Allan þann tíma á hún heima á Eyrarbakka að undanskildum 7 árum, 1840—1847, er hún dvaldist víð verslunarstörf í Hafnarfirði. Fyrsta áratuginn, sem hún átti heima á Eyrarbakka, var hún formaður í Þorlákshöfn á vetrarvertíðum og stýrði áttæringi og aflaði vel.

Lengst af var hún sjálfrar sín, ýmist við smábúhokur eða sem húskona á Skúmsstóðum þar til seinustu 8—9 árin sem hún lifði, er hún varð að þiggja sveitarstyrk, þá komin fast að áttræðu. Hún dó í Einarshöfn haustið 1863 86 ára gömul, furðanlega ern til hins síðasta. Þuríðarbúð á Stokkseyri var reist árið 1949 til minningar um Þuríði formann. Búðin stendur nálægt þeim stað sem búð Þuríðar stóð.

Tengdar bækur