Flóttinn

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2004 990 kr.
spinner

Flóttinn

Útgefandi : JPV

990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2004 990 kr.
spinner

Um bókina

Þegar Bretar hernámu Ísland vorið 1940 lagði ungur Þjóðverji, Thomas Lang, á flótta. Hver var þessi maður og með hvaða undraverða hætti tókst honum að fara huldu höfði í rúmt ár, á flótta undan hæfustu þjónum heimsveldisins? Líf hans var í stöðugum háska ? og oftast virtist skelfingin ein blasa við. Hér er tekist á við ýmsar grundvallarspurningar sem kvikna þegar allar brýr brenna umhverfis einstaklinginn.

Sögusvið Flóttans eru mestu umbrotatímar í sögu íslensku þjóðarinnar. Bókin er hlaðin litríkum persónum og örlagaríkum atburðum. Höfundur sýnir ekki aðeins nýjar hliðar á sjálfum sér heldur einnig á sögu Íslands, þegar stríðið og nútíminn komu í óvænta heimsókn.

Flóttinn afhjúpar mannlegt eðli á hvaða tímum sem er. Stríð og styrjaldir verða seint úr sögunni. Fólk tekst sífellt á við ómanneskjulegar aðstæður sem ómögulegt væri að glíma við án húmors og hörku því að þeir sem elta þreytast aldreiþ

Sindri Freysson er í hópi þeirra ungu höfunda sem markað hafa sér sess í íslenskum bókmenntum á undanförnum árum. Hann hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir verk sín, og hafa þau m.a. verið þýdd á þýsku, sænsku og frönsku. Flóttinn er önnur skáldsaga Sindra og styðst hann hér við fjölda viðtala og margra ára rannsóknir á gögnum og heimildum.

Tengdar bækur