Ég skal vera dugleg

Útgefandi: Salka
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2009 120 1.695 kr.
spinner

Ég skal vera dugleg

Útgefandi : Salka

1.695 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2009 120 1.695 kr.
spinner

Um bókina

Til allrar hamingju er það ekki hlutskipti margra lítilla barna að dvelja langdvölum á sjúkrahúsi, fjarri fjölskyldu og vinum. Það fékk þó Lovísa María Sigurgeirsdóttir frá Hrísey að reyna og í bókinni Ég skal vera dugleg rifjar hún upp dvöl sína á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þegar hún var lítil stelpa upp úr 1960.

Á einlægan hátt lýsir Lovísa María líðan sinni innan veggja sjúkrahússins og þeim heimi sem þar var, heimi sem einkenndist jafnt af æðruleysi og örvæntingu – sorgum og sigrum.

Hún segir frá söknuðinum, framandleikanum og kynnum sínum af börnum og gömlu fólki sem hún tengdist órjúfanlegum böndum. Sumir náðu sér og kvöddu með bros á vör – aðrir kvöddu þetta líf.

Lóa Maja fékk bót meina sinna en gleymir aldrei Tóta og öllum hinum sem kenndu henni að meta hinar margvíslegu hliðar mannlífsins.

Tengdar bækur